Hversu lágt er hægt að leggjast?

Bókmenntafélagið "Mál og menning" virðist vera að hrekja gamalgróna verslun Bókabúð Máls og Menningar úr húsnæði sínu.  Gátu þeir nú ekki fundið frumlegra nafn, ætla sér greinilega að skreyta sig með annarra manna fjöðrum? Mér sýnist nýja Ísland ekkert vera betra en það gamla. Ég veit um annað dæmi þar sem loka varð blómabúð því ríkisbanki hrakti eigendur úr húsnæði sínu því hann þurfti að nota það fyrir eitt af fyritækjum sínum.  Kennitöluflakk og sala á fyrirtækjum með afföllum til vina og vandamanna er einnig í algleymingi.  Æi, mér líst ekki alveg á blikuna.
mbl.is „Hrein og klár viðskipti"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Hvað ætti svosem að breytast ?

það er ennþá sama fólk að hygla sínum og það breytist ekki meðan 4ra flokka kerfið er við líði.

Það skiptir engu máli hvaða lið situr á Alþingi, og þeir sem voga sér að reyna að "fara eftir sannfæringu sinni" eru bara teknir á teppið og hótað !

Birgir Örn Guðjónsson, 18.7.2009 kl. 10:03

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Að væna Árna Einarsson - starfsmann/og forsvarsmann  Máls og menningar til ótal margra ára um þá lágkúru sem fram kemur í blogginu hér fyrir ofan - er lágkúra.

Árni á STÓRAN þátt í sögu Máls og menningar og sá þáttur er allur jákvæður.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 18.7.2009 kl. 10:41

3 Smámynd: Ólafur Gíslason

Það vantar alveg inn í fréttina ef svo er.  En finnst þér ekkert skrítið að opna búð á sama stað með nærri því sama nafni og það af starfsmanni eða fyrrverandi starfsmanni burtséð frá sagnfræði?  Minnir soldið á ísbúðina í Álfheimum sem hraktist inn í Fen.

Ólafur Gíslason, 18.7.2009 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Gíslason

Höfundur

Ólafur Gíslason
Ólafur Gíslason
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 336725_zoom

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 470

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband