Námsmatsstofnun?

Íslenska þjóðin er með her manns í vinnu við að útbúa m.a. samræmd próf í Stærðfræði fyrir 10. bekk grunnskóla.  Þetta fólk virðist ekki hafa áttað sig á því að búið er að færa prófið frá því að vera í lok 10. bekkjar fram í það að vera við upphaf 10. bekkjar.  Þau hafa þess vegna inni í prófinu dæmi sem prófa þekkingu á námsefni sem tilheyrir 10. bekk og unglingarnir hafa augljóslega ekki lært það námsefni.  Slík próf skekkja mjög mat á þekkingu og hæfni því þau hrista upp og stoppa unglingana í prófinu og fær þau til að missa sjálfstraust og trú og eyða tíma og orku í eitthvað sem þau eiga ekki að kunna.  Unglingar á þessum aldri eru mjög viðkvæmir og mis harðir í að standast svona álag og slík próf skekkja eins og áður segir mjög niðurstöðuna við mat á þekkingu og hæfni þeirra.  Þetta gerðist í fyrra og virðist hafa gerst aftur núna og fer ég fram á að skattpeningar okkar séu betur nýttir en þetta.


mbl.is Þrjú dæmi felld úr stærðfræðiprófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bæði sleppt og haldið...

Vissulega eru ýmsar ástæður fyrir að íslendingar flytja erlendis en það er ekki bæði sleppt og haldið í þessu fremur en öðru.  Þessir íslendingar eru að greiða skatta sína erlendis og hafa skilið okkur eftir með ástandið eins og það er hér.  Af hverju ættu skattarnir mínir að fara í að niðurgreiða námslán fyrir slíka nemendur?
mbl.is Ekki lánað til nema erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hana rekur ekki minni til..." ???

Eru ekki haldnar fundargerðir á fundum VG?  Ég hélt það væru bara Íslenskir spillingarpésar sem muna aldrei neitt eftir hvað þeir gerðu eða sögðu en kannski er VG í sama flokki eða hvað?
mbl.is VG samstiga um Líbíurannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fugl í skógi en ekki hendi...

Það er fullsnemmt að byrja að telja peningana strax.  Hann hefur ekki grætt neitt fyrr en hann selur þs verðhækkunina má rekja beint til þessara viðskipta. Svona fréttaflutningur minnir á Ísland 2007. 


mbl.is Græddi 32 milljarða á einum degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er þetta á myndinni?

Ég kannast ekki við persónuna á myndinni, hef amk ekki séð eða heyrt frá henni lengi.  Kannski vantaði textann:  "Myndin tengist ekki fréttinni beint".  Mér sem almennum kjósanda sýnist sem lið sem fékk tæplega 22% atkvæða sólói algerlega með (ó)stjórn landsins, með leyfi forseta: 

 Heiti                                            Atkvæði Hlutfall  Þingmenn

 Vinstrihreyfingin - grænt framboð

  40580

  21,68%

  14


mbl.is „Engin áform um matarskatt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt til í þessu hjá honum en...

... merkilegt að hann skuli falla í "stereotypugryfjuna" sem maður hefði nú haldið að hann vildi helst forðast.  Manni sárnar þetta aðeins því ég tilheyri þessum "miðaldra karlmaður" hópi en hef hvorki byssu né biblíu í hönd og fagna öllum jafnrétti hvort sem það er vegna kynferðis, kynhneigðar, útlits, skoðana eða uppruna.  En Páll Óskar hefur líka fullan rétt á að hafa þessa skoðun og við megum alveg vera ósammála.
mbl.is Mikil umræða um orð Páls Óskars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kortum hafnað erlendis líka...

... það vantar í fréttina að korthafar erlendis lentu í vandræðum þám ég, því kortinu mínu var hafnað í Gatwick lestinni á þessum tíma.  Eins gott að hafa nokkur pund í vasanum þegar þetta hángir allt á einni tölvu uppi í Fannskerinu.  Get ímyndað mér að einhverjir hafi orðið undrandi við að standa upp frá stórdinner og ætlað að greiða með korti en lent í uppvaskinu í staðinn...
mbl.is Bilun varð í stórtölvu RB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Gíslason

Höfundur

Ólafur Gíslason
Ólafur Gíslason
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 336725_zoom

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 58404

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband