Færsluflokkur: Spaugilegt

Þetta er nú soldið "2007"

Það er greinilega bullandi tap á sjoppunni upp á tæpar 800 milljónir. PUNKTUR.  Enginn hagnaður, heldur hundakúnstir a'la 2007.  Ekki meira svona takk.
mbl.is Nýherji skilar 90 milljóna hagnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað margir heimskir?

Af hverju er veriða að blanda greindarvísitölu í þetta?  Flestir eru annars alveg búnir að missa áhugann á þessari flensu sem virðist vera minni háttar, alltaf samt jafn fyndið að mæta asíubúum með grímu á flugvöllum.  Væri gaman að vita hvort það hefur einhver áhrif að vera með grímu?
mbl.is 18 greindir með svínaflensu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstaktur saksóknari að því leiti að hann er skemur en 7 ár að rannsaka mál.

Það sem einkum er sérstakt við þennan saksóknara er hve hratt rannsókn mála virðist ganga.  Það er þó of snemmt að leggja endanlegan dóm á það en vonandi förum við að sjá ákærur í málum sem okkur leikmönnum virðast vera borðleggjandi.
mbl.is Sjö ný mál inn til sérstaks saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu lágt er hægt að leggjast?

Bókmenntafélagið "Mál og menning" virðist vera að hrekja gamalgróna verslun Bókabúð Máls og Menningar úr húsnæði sínu.  Gátu þeir nú ekki fundið frumlegra nafn, ætla sér greinilega að skreyta sig með annarra manna fjöðrum? Mér sýnist nýja Ísland ekkert vera betra en það gamla. Ég veit um annað dæmi þar sem loka varð blómabúð því ríkisbanki hrakti eigendur úr húsnæði sínu því hann þurfti að nota það fyrir eitt af fyritækjum sínum.  Kennitöluflakk og sala á fyrirtækjum með afföllum til vina og vandamanna er einnig í algleymingi.  Æi, mér líst ekki alveg á blikuna.
mbl.is „Hrein og klár viðskipti"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vefur í Langtbortistan, hahahaha

Hvaða bullfrétt er þetta að vera að vitna í einhvern trúarlegan vef í fjarlægu landi sem heilagan sannleik um afstöðu fólks til umsóknar Íslands?  Þessu er greinilega ritstýrt af trúarlegum ástæðum og verið að reyna að leita að mismunun vegna trúar. 
mbl.is Aðild Íslands móðgun við Tyrki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég skal borga 2000 kall fyrir bóluefnið mitt

Ef þetta eru 300 þúsund skammtar og kostnaður hleypur á hundruðum milljóna þá kostar skammturinn c.a. 1 til 2 þúsund krónur.  Ég væri alveg til í að borga 10.000 kall fyrir bólusetningu allrar fjölskyldunnar.  Ég þarf t.d. að borga 70 þúsund fyrir RÚV í ágúst þ.a. mig munar ekkert um þetta.  Mér leikur líka forvitni á að vita hvernig ákveðið verður hver verður bólusettur.  Væntanlega allir alþingismenn og ráðherrar og starfsmenn heilbrigðisgeirans. 
mbl.is Bóluefni á leið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnisleysi og týndar skýrslur...

Eigum við virkilega að trúa þessu minnisleysi stjórnmálamanna og óreiðu í skjalastjórnun?  Það að finna minnisblað eða skýrslu er ein fyrirspurn til skjalavarðar eða uppfletting í skjalavistunarkerfi, það er ekki eins og það þurfi að kalla út hjálparsveit til að finna slíkt. 
mbl.is „Mér er sagt það sé til“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda verða þær aldrei nema ári eldri en það...

Nú fer maður að skilja af hverju konur hætta að eldast og eru 29 ára allt þar til þær verða allt í einu 100 ára...  Þær vilja bara halda áfram að vera hamingjusamar þessar elskur.


mbl.is Konur hamingjusamastar 28 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefumst ekki upp þó móti blási!

Ég óska Bónus og Færeyingum til hamingju með nýju verzlunina í Færeyjum.
mbl.is Ný Bónus-verslun í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En mátti hann "messa" undir áhrifum?

Ítalir þurfa kannski að hafa áfengismæli í pontunni til að prestum þeirra verði ekki á í messunni...
mbl.is Kennir messuvíni um ölvunarakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Gíslason

Höfundur

Ólafur Gíslason
Ólafur Gíslason
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 336725_zoom

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband