7.10.2011 | 11:34
Námsmatsstofnun?
Íslenska þjóðin er með her manns í vinnu við að útbúa m.a. samræmd próf í Stærðfræði fyrir 10. bekk grunnskóla. Þetta fólk virðist ekki hafa áttað sig á því að búið er að færa prófið frá því að vera í lok 10. bekkjar fram í það að vera við upphaf 10. bekkjar. Þau hafa þess vegna inni í prófinu dæmi sem prófa þekkingu á námsefni sem tilheyrir 10. bekk og unglingarnir hafa augljóslega ekki lært það námsefni. Slík próf skekkja mjög mat á þekkingu og hæfni því þau hrista upp og stoppa unglingana í prófinu og fær þau til að missa sjálfstraust og trú og eyða tíma og orku í eitthvað sem þau eiga ekki að kunna. Unglingar á þessum aldri eru mjög viðkvæmir og mis harðir í að standast svona álag og slík próf skekkja eins og áður segir mjög niðurstöðuna við mat á þekkingu og hæfni þeirra. Þetta gerðist í fyrra og virðist hafa gerst aftur núna og fer ég fram á að skattpeningar okkar séu betur nýttir en þetta.
Þrjú dæmi felld úr stærðfræðiprófi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Um bloggið
Ólafur Gíslason
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.