27.4.2010 | 10:15
Ég held að menn séu að ofmeta mátt forsetans.
Ég held að menn séu að ofmeta mátt forsetans. Vilduð þið fara til lands þar sem er eldgos í gangi sem lokar öllum flugvöllum Evrópu reglulega, truflar flugsamgöngur hinu megin á hnettinum og hvaðan fréttamenn eru stöðugt að birta myndir þar sem þeir eru inni í svarta-ösku-skýi? Ég persónulega myndi bíða í amk 1 ár og sjá til næsta ár.
Dýrkeypt yfirlýsing forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Um bloggið
Ólafur Gíslason
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góður punktur.
Sigurður Haraldsson, 27.4.2010 kl. 11:30
Sem einhver sem þekkir til ferðabransans á Íslandi get ég sagt ykkur að þessar yfirlýsingar Óla eru búnar að kosta fyrirtækin hundruðir milljóna. Daginn eftir viðtalið við BBC stoppaði ekki síminn hjá stærstu fyrirtækjunum því fólk var afbóka ferðir alveg fram á haust og tók engum rökum. Menn verða að hugsa áður en þeir tala.
Arnar Steinn , 27.4.2010 kl. 12:07
Sæll Ólafur,
Sammála.
Arnar: Ég leyfi mér að stórefast um að þessi viðtöl hafi kostað "hundruð milljóna" eða "tugi milljarðar" eins og þú og fleiri hafa haldið fram. Hér var stanslaus umræða um eldgosin í sjónvarpi, blöðum og útvarpi alveg frá því byrjaði að gjósa á Fimmvörðuhálsi og var farið að tala um hættu á Kötlugosi innan við sólarhring eftir að Fimmvörðuháls byrjaði. Flugi var aflýst í Evrópu í lengri tíma og fleiri flugferðum, heldur en eftir hryðjuverkaárásirnar 2001. Að halda því fram að þetta hafi ekki haft nein áhrif en allt hafi farið upp í loft yfir því sem Ólafur sagði er fásinna. Ólafur sagði ekkert sem hafði ekki verið í umræðunni vikum saman hérna úti og ekkert sem hann sagði hefur komið á óvart. Þetta er ósköp einfalt mál: Mesta röskun í millilandaflugi í sögunni varð eftir gosið í Eyjafjallajökli. En samkvæmt ferðamálafrömuðum á Íslandi hafði það engin áhrif, en nokkrar setningar sem ÓRG sagði setti allt um koll. Það virðist sem að ruglið undanfarin ár hafi rænt Íslendinga öllum möguleikum á því að hugsa rökrétt.
Kveðja,
Arnór Baldvinsson, 27.4.2010 kl. 20:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.