Færsluflokkur: Spaugilegt

Þar fór góð landkynning fyrir lítið!

Þetta verður frábær landkynning sem snýst upp í andhverfu sína ef þeir fara að segja brandara í þættinum um heimsku íslendingana sem sendu lögguna á þá.  Ef  einhver hjólför eru eftir þá, þá eru þau örugglega ekki eins mikil og eftir alla fótgangandi ferðalangana sem spranga þarna um allt og vísindamenina sem skilja ekki neina steina eftir ósnúna til að komast að leyndarmálum eldgosa.  (Ég veit, þetta er enskusletta.)
mbl.is Lögregla rannsaki akstur Top Gear
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkisdagur í réttindabaráttur karla!

Nú eru karlmenn búnir að stíga enn eitt skref áfram í réttindabaráttu sinni.  Nú er þeirri ógn bægt frá þeim að vafra ölvaðir inn á einhverja búllu þar sem létt-klædd tálkvendi grípa þá og hafa af þeim ómælt fé fyrir að gefa í skyn eitthvað sem aldrei verður veitt.  Fórnarlömb súlustaða eru nefnilega auðtrúa karlar sem eru féflettir af sterkara kyninu.
mbl.is Álykta um lögbann við nektardansi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkisdagur í réttindabaráttu karla!

Nú eru karlmenn búnir að stíga enn eitt skref áfram í jafnréttisbaráttu sinni.  Nú er þeirri ógn bægt frá þeim að vafra ölvaðir inn á einhverja búllu þar sem létt-klædd tálkvendi grípa þá og hafa af þeim ómælt fé fyrir að gefa í skyn eitthvað sem aldrei verður veitt.  Fórnarlömb súlustaða eru nefnilega auðtrúa karlar sem eru féflettir af sterkara kyninu.


mbl.is Alþingi bannar nektardans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eldgos?

Það vantar allar myndir og hreyfimyndir af þessu gosi.  Þetta hljómar og virðist vera úti í geymnum eða álíka.  Almannavarnir og fleiri eru að tapa sér í forræðishyggju.  Og ekki segja að ég viti ekki um hvað málið snýst því ég bjó við Búrfellsvirkjun fyrir, á meðan og eftir gosið árið 1970 en á Íslandi verður þetta ekki eins og í bíómyndum þs allt springur í loft upp.   Við eigum frábæra ljósmyndara, kvíkmyndatökumenn og frétta- og blaðamenn sem hljóta að geta gert betur.
mbl.is Tilkomumikið og stórfenglegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóræningar!

Þetta voru sjóræningar en ekki víkingar.  Þeir tóku allar eignir sem þeir sáu, plokkuðu allt verðmætt utan af og innan úr, sóuðu og skildu bara eftir sig roð og bein.
mbl.is Útrásarvíkingar vandræðalegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

60-70 herbergi?

Á hvaða stigi hönnunarinnar verður ákveðið nákvæmlega hve mörg herbergi verða á hótelinu?  Kannski er bara byrjað að grafa og síðan byggja og séð til hve mörg herbergi verða þegar upp er staðið.
mbl.is Byggja hótel við Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerir sjálfur lítið úr sínu eigin heimalandi

Þó Tevez sé góður fótboltamaður þá er hann greinilega ekki mjög greindur ef hann hefur látið hafa þetta eftir sér en maður tekur þessu með salti eins og öllum öðrum fréttum.  Hugsanlega er hann að reyna að hræra í Englendingum fyrir Heimsmeistaramótið í sumar.

 Með sona ummælum gerir hann lítið úr Argentínu og siðferðinu þar.


mbl.is Tévez: Terry siðblindur og hefði verið drepinn í Argentínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þá kominn sláttur á Jörðina?

Ef möttullinn hefur færst frá miðju þá er væntanlega kominn sláttur í Jörðina gagnvart sólinni þar sem mismikill massi er í mismikilli fjarlægð.  Hugsanlega hefur hann verið til staðar áður en breytist við þetta.  Hvaða áhrif hefur þetta á t.d. sjávarföll, veðurfar, braut Jarðar ofl, ofl? Þessi breyting hefur væntanlega miklu meira í för með sér en breytingar á sólarhring.


mbl.is Breytti möndli jarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Gíslason

Höfundur

Ólafur Gíslason
Ólafur Gíslason
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 336725_zoom

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband