Eru stjörnufræðingar fornleifafræðingar?

Kannski voru þeir að uppgötva eitthvað sem er ekki lengur til og gæti hafa horfið fyrir milljörðum ára.
mbl.is 13 milljarða ára á leiðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Löglegur" þjófnaður

Það á að hafa lágmarks boð á uppboðum, t.d. 80% af fasteignamati.  Þetta er ekkert annað en "löglegur" þjófnaður.  Þú kaupir íbúð á 25 milljónir, færð lán fyrir 20.  Lánið hækkar í 45 og íbúðin seld á 3 milljónir.  Þú skuldar eftir sem áður 42 milljónir auk svívirðilegs kostnaðar og búið að hirða eigið fé þitt og eignina af þér.  Þetta er Ísland í dag.
mbl.is Bauð upp 44 íbúðir við Vindakór á 40 mínútum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öngstræti, óðagot og Ögmundur

Kallinn slær um sig klisjum til að reyna að réttlæta að gera ekki neitt og bæta enn í við að drepa niður atvinnu í landinu.  Að vísu fagna ég því að hann ætlar að stoppa þetta moldrok sem Samfylkingin er sífellt að blása upp mþa breyta, endurnefna og færa nefndir, stofnanir og fyrirtæki til að það líti út fyrir að þau séu að gera eitthvað.
mbl.is Ögmundur: Ekkert óðagot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur sá bara tækifæri í hruninu

Steingrímur sá bara tækifæri í hruninu.  Hann sá engin vandamál og sér þau ekki ennþá.

336725_zoom


mbl.is Líta mótmælin öðrum augum nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munið eftir að afhenda kvittanir með jólagjöfunum

Ríkisstjórnin á örugglega eftir að koma með skatt á jóla- og ammælisgjafir.  Það er spurning hvort ekki á að skattleggja handhafa Fálkaorðunnar og hvernig er með dagpeninga þingmanna erlendis jafnvel þegar allt uppihald er greitt líka?
mbl.is Erfðafjárskattur hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífshættuleg salmonellusýking?

Já, þingmenn hefðu getað sýkst af lífshættulegri salmonellu við að fá eggin í sig.  Sigmundur Ernir hefur séð líf sitt líða hjá á einu augabraððððði, auðabrði, augabragði.
mbl.is Lífi annarra stefnt í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin munur á þessu og IceSave

Bretar og Hollendingar sem létu glepjast af gylliboðum eru einfaldlega ekki á mína ábyrgð.  Í mínum huga var IceSave eins og Nígeríubréf, hvernig gat Íslenskur banki greitt mikið hærri vexti en  Brezkir og Hollenzkir? 


mbl.is Svindlbréf send frá „íslensku lottói“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Gíslason

Höfundur

Ólafur Gíslason
Ólafur Gíslason
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 336725_zoom

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband