Öryggiseftirlitið er fyrir okkur

Við eigum að fagna miklu öryggiseftirliti á flugvöllum.  Það er til að vernda okkur farþegana og þess vegna eigum við að sýna þolinmæði og mæta tímanlega á völlinn.   Ekki vil ég að einhver Egill Skallagrímsson komist með sprengju og/eða vopn inn í vélina sem ég er í eða flýgur yfir mitt heimili.  Vandamálið er kannski það að eftirlitsmenn sofna hægt og rólega á verðinum en hrökkva upp og herða eftirlitið þegar eitthvað sleppur í gegn.
mbl.is Eftirlit hert í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða skuldir eru þetta nákvæmlega?

Hvernig stendur á því að "þjóðarbúið" skuldar yfir 5000 milljarða.  Hvaða skuldir eru  þetta og hverjir stofnuðu til þeirra og hvenær og af hverju er þetta á ábyrgð þjóðarinnar? 
mbl.is Skuldum 5150 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innra eftirlit?

Var virkilega ekkert innra eftirlit í gömlu baunkunum?  Það er ekki bara Fjármálaeftirlitið og slíkar stofnanir sem voru í molum heldur líka innviðir.  Þarf maður kannski að fara að lesa betur yfir gömul yfirlit af reikningum og greiðslukortum?
mbl.is Fyrrum starfsmaður Landsbankans ákærður fyrir fjárdrátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efni í (góða/slæma) bíómynd?

Hetjan á Cadillac Escalade að flýja undan konu á golfbíl sveiflandi golfkylfu.  Ætli þeir hafi ígildi Stígamóta fyrir karlmenn í henni Ameríku?
mbl.is Woods flúði reiða eiginkonu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað, verzlunin er búin að velta hækkunum út í verðlagið

Verzlunarmenn á Íslandi hafa verið fljótir að velta verðhækkunum vegna gengisfallsins út í verðlagið. Halda óbreyttri álagningaprósentu á hækkað innkaupsverð.  Í öðrum löndum eins og t.d. Punda og Dollaralöndum er kreppa og útsölur og verðlækkanir en ekki hér. Evrulöndin eru of dýr fyrir okkur núna.  Það margborgar sig að fara t.d. til London, Glasgow eða USA og kaupa inn fyrir jólin.


mbl.is Þátttaka í borgarferðum hefur aukist á nýjan leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmm... tryggja sig gegn því að staðið verði við skuldbindingar?

Ætli þetta hafi ekki snúist við í þýðingu blaðamanns?  Menn tryggja sig væntanlega gegn því að lántakandinn geti EKKI staðið við skuldbindingar sínar...
mbl.is Skuldatryggingaálag Dubai hærra en Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hænan og eggið...

O, ætli hundurinn hafi ekki byrjað að elta og/eða gelta að kengúrunni.
mbl.is Kengúra reyndi að drekkja hundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Gíslason

Höfundur

Ólafur Gíslason
Ólafur Gíslason
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 336725_zoom

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 729

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband