Ábyrgðalausir stjórnendur lífeyrissjóða...

Hvaða vitleysingur sendir inn 5,2 milljarða kröfu í lögfræðing og fer svo í golf eða veiði eða hvað?  Menn eiga að fylgjast með því ábyrgðin er sjóðsins....  "Blassaðr félagi!  Hvernig ertu í'onum?  Sendirðu ekki inn kröfuna fyrir gærdaginn, hehe?".    "Jú, kröfuna þú mannst, þessa... hvað var hún aftur?   Já, 5,2 milljarðar".  "Já, það var í gær, ertu ekki búinn að því??"  "Úbbosssí....,"
mbl.is Dýr mistök lögmannsstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, voru þeir að slægja eitthvað drengirnir?

Þetta hefur verið einhver annar leikur.   Á meðan ég horfði þá slóu leikmenn Chelsea leikmenn Barcelona út úr Meistaradeildinni... hehe. Devil


mbl.is Tíu Chelsea-menn slógu út Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það varð líka siðferðilegt hrun...

... þessi málatilbúningur allur og niðurstaða lyktar illilega af pólitískum nornaveiðum og styður þá fullyrðingu að það hafi einnig orðið siðferðilegt hrun í október 2008 sem olli því að núverandi ríkisstjórn komst til valda og hefur óspart nýtt tækifærið í allt nema koma landinu á réttan kjöl.
mbl.is „Skammar þeirra verður lengi minnst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfnum þessum peningum...

Við þurfum ekkert að vera á ESB spenanum en ESB reynir að láta okkur ánetjast sjóði þess til að leiða okkur inn til sín.  Við eigum ekkert að vera að greiða Bretum eitthvað sérstaklega fyrir tjón vegna hruns banka í Bretlandi og eigum heldur ekkert að þiggja "aðstoð" frá þeim.


mbl.is Vill stöðva greiðslur til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Námsmatsstofnun?

Íslenska þjóðin er með her manns í vinnu við að útbúa m.a. samræmd próf í Stærðfræði fyrir 10. bekk grunnskóla.  Þetta fólk virðist ekki hafa áttað sig á því að búið er að færa prófið frá því að vera í lok 10. bekkjar fram í það að vera við upphaf 10. bekkjar.  Þau hafa þess vegna inni í prófinu dæmi sem prófa þekkingu á námsefni sem tilheyrir 10. bekk og unglingarnir hafa augljóslega ekki lært það námsefni.  Slík próf skekkja mjög mat á þekkingu og hæfni því þau hrista upp og stoppa unglingana í prófinu og fær þau til að missa sjálfstraust og trú og eyða tíma og orku í eitthvað sem þau eiga ekki að kunna.  Unglingar á þessum aldri eru mjög viðkvæmir og mis harðir í að standast svona álag og slík próf skekkja eins og áður segir mjög niðurstöðuna við mat á þekkingu og hæfni þeirra.  Þetta gerðist í fyrra og virðist hafa gerst aftur núna og fer ég fram á að skattpeningar okkar séu betur nýttir en þetta.


mbl.is Þrjú dæmi felld úr stærðfræðiprófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bæði sleppt og haldið...

Vissulega eru ýmsar ástæður fyrir að íslendingar flytja erlendis en það er ekki bæði sleppt og haldið í þessu fremur en öðru.  Þessir íslendingar eru að greiða skatta sína erlendis og hafa skilið okkur eftir með ástandið eins og það er hér.  Af hverju ættu skattarnir mínir að fara í að niðurgreiða námslán fyrir slíka nemendur?
mbl.is Ekki lánað til nema erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Gíslason

Höfundur

Ólafur Gíslason
Ólafur Gíslason
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 336725_zoom

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband